|
Um Stjörnubíla
Stjörnubílar tók til starfa 2001. Síðan þá höfum við vaxið ört og aukið sætafjölda úr 59 upp í 210 auk þess erum við með sérútbúinn bíl fyrir akstur hreyfihamlaðra.
Við leggjum áherslu á okkar heimsvæði sem eru Vestfirðirnir, bæði norður og suðurfirðir, þar sem við bjóðum bæði upp á áætlunarferðir og skoðunarferðir.
Takmark okkar er að kynna jafnt ferðamönnum sem og heimamönnum náttúru, sögu og menningu okkar vestfirðingar og þá fjölbreyttu afþreyingu sem í boði er. Bjóðum einning upp á óvissuferðir og sérferðir fyrir hópa og fyrirtæki, jafnt stór sem smá, þar sem allt er innifalið líka góða skapið.
|